13.2.2008 05:14:37 / Mr. Mcaddi
Finding Neverland
Aðalhlutverk: Johnny Depp, Kate Winslet, Dustin Hoffman, Julie Christie.
Leikstjóri: Marc Forster
Setti mig í kvikmyndagírinn í gærkveldi og hóaði fjölskyldunni saman við skjáinn. Núna væri stórmynd að hefjast um aðdraganda ævintýrisins um Pétur nokkurn Pan. Fékk sæmó undirtektir og eftir hálftíma sat ég ein við skjáinn. Johnny Depp er ótrúlegur sem hálfur íri og hálfur skoti (var ekki viss hvort en fékk áreiðanlegar heimildir frá Primo) náði frábærum hreim að mínu mati og leikurinn ekki síðri. Hann er alveg að verða í uppáhaldi hjá mér kauði. Myndin er æðisleg svo ekki sé meira sagt. Ætla ekki að fara að rekja neitt söguþráðinn frekar. Skil ekki þegar það er gert í kvikmyndagagnrýni? WHY? Anyhú - James M. Barrie, sem JD leikur er eitthvað að misheppnast við að gera leikrit og kemst svo í hæstu hæðir með Petur Pan. Dálítill gúgú karakter og náði ekki alveg að sjarma mig upp úr skónum sem slíkur en myndin er frábær og hressandi að gráta svona VEL í lokin. Gerir myndina svo áhrifamikla. Aðrir eru að gera góða hluti eins og Kate og Dustin. Útlit myndarinnar er fallegt og búningarnir skemmtilegtir sem endurspegla tímann sem er byrjun 20.aldarinnar. Reyndi svo að svekkja fólkið á heimilinu með því að bauna á þau hversu mikilli snilld þau hafi misst af og hafði ágætlega gaman að því að leika endirinn sem að mínu mati var rúsínan. Mér finnst ég alls ekki örlát að skella á hana **** stjörnum.
THE CORE: (2003)
Aðalhlutverk: Hillary Swank, Aaron Eckhart og Delroy Lindo Leikstjóri: Jon Amiel
Jæja - ætla að bæta upp arfaslaka gagnrýni hér síðast. Tók tvær myndir í gær þar sem ég lá í flensu og hafði lítið annað að gera. Langaði að sjá einhverja heimsendamynd á borð við Armageddon eða Deep impact og því lá þessi mynd beinast við. Jon Amiel hefur gert myndir á borð við Entrapment og Copycat og því var ég viss um að ég kæmist í feitt. Myndin hefst á furðulegum tilfellum þar sem eitthvað mjög undarlegt er að gerast í heiminum og ekki allt eins og það á að vera. Allir með gangþráð deyja á sama tíma og dúfur fara að fljúga á byggingar. Steik. Að venju er kallað til fólk með ótrúlega þekkingu á hinu og þessu og þeirra á meðal er háskólaprófessor sem er hetja myndarinnar. Mjög fær flugmaður (Swank) er líka kölluð til en í byrjun myndar tekst henni á ótrúlegan hátt að lenda geimskutlu í miðri LA þar sem að segulsvið jarðar (sem er að fara í klessu) hefur ruglað allt kerfið í velinni og gefið þeim röng hnit. Í basic snýst myndin um það að segulsvið jarðar er að fara forgörðum sökum þess að í kjarna jarðarinnar er fljótandi vökvi sem snýst milljón hnúta á sek í sömu átt og heldur þar með segulsviði jarðar í skefjum. Þessi snúningur er hins vegar stanz og heimsendir blasir við jarðarbúum ef ekki tekst að koma í veg fyrir það! Já, og hana nú. Reddum þessu með því að fara að kjarna jarðar og koma 500000 gráðu vökva aftur á fleygiferð. Upphefst leit að besta og færasta fólki til þess að fara í þennan leiðangur. Skip er smíðað sem nota bene kemst alla leið að kjarna og áhafnarmeðlimir etja kappi við ótrúleg öfl jarðar við að komast að kjarnanum til þess að gera kraftaverk. Mynd sem er svo sannarlega í anda Armadeddon og fær mann til þess að þakka fyrir að ekkert svona steðji að okkur í raunveruleikanum.......en hver veit - í myndinni er þetta top-secret leiðangur og hver veit nema NASA sé í óða önn að koma í veg fyrir heimsendi......right. Myndin var afþreying en eins og hinar heimsendismyndirnar þá var þetta unreal as hell og gott ef þessi sló hinum ekki ref fyrir rass hvað það varðar. Niðurstaða: *1/2
Der Untergang (2005)
Mynd sem sló í gegn á kvikmyndahátíðinni í vor ásamt The Motorcycle Diaries & Hotel Rwanda sem ég á báðar eftir að sjá líka. Myndin er nokkuð löng eða 2 og 1/2 tími. Hún hefst á frásögn Traudl Junge sem var á tíma Hitlers hans einkaritari. Myndin gerist á rúmum 10 dögum og eru þetta síðustu dagar í lífi Hitlers og sýna ringulreiðina sem ríkti innan herbúða nasista á þessum síðustu og verstu. Myndin gerist að mestu í neðanjarðarbirgi í Berlín þar sem Hitler og hans menn ráða ráðum sínum. Það kom mér mjög á óvart hve ljúfur og indæll Hitler virtist vera við sína nánustu og hversu heitbundnir hans nánustu voru honum. Hann sýndi herforingjum innan sinna raða enga miskunn og snappaði hvað eftir annað vegna þess hve ósáttur hann var við aðgerðir þeirra. Hann virtist engum treysta og allir voru að svíkja hann.
Der Untergang er fyrsta þýska myndin sem tekur svona hreint á Hitler síðan Der Letste Akt (the last act) kom út árið1956 en sú saga var sögð af óbreyttum þýskum hermanni. Hugmyndina að handritinu fékk Bernd Eichinger þegar hann las bók Joachim Fest - Downfall: The Last Days of the Third Reich. Eichinger las einnig mjög áhugaverða og mikilvæga bók á sama tíma og hann las bók Fests. Sú bók hét Until the Final Hour: Hitler's Last Secretary og er saga Traudl Junge. Eichinger segir að Fest hafi gefið sér ramman en Traudl Junge hafi gefið sér karakterinn sem náði að halda öllu saman.
Ég mæli hiklaust með myndinni. Hún er skemmtileg viðbót við annars hrikalegan söguþráð síðari heimstyrjaldarinnar, nasismans og hryllingsins sem stríðið var. Í lok myndarinnar koma upplýsingar um helstu persónur myndarinnar sem voru mestmegnis höfuðpaurar SS sveitana og yfirmenn nasista. Kom mér sérstaklega á óvart hversu stutt er síðan síðustu menn dóu en það var í hitt í fyrra. Traudl Junge lést 2001.
Niðurstaða: ***