Sibbi Prestley hefði nú verið tilvalin að skrifa færslu um bestu jólamyndir allra tíma en ég ætla alla veganna að henda upp mínum lista:
10. The Grinch; Jim Carrey fer á kostum í skemmtilegri en barnalegri jólamynd.
9. Elf; Will Ferrell fer á kostum í einni af betri jólamyndum undanfarin ár.
8. Gremlins; einhver skemmtileg nostalgíu jólastemning yfir þessari mynd enda var ég 7 ára þegar hún var frumsýnd en það er aldrei eins skemmtilegt á jólunum þegar maður er 7 ára. Samt er nú kannski ekkert jólalegt við lítil skrímsli setjandi allt á annan endann en klassík engu að síður.
7. Home Alone; en önnur nostalgíumynd en þessi mynd er skylduáhorf um hver jól.
6. Die Hard; kannski ekki beint jólamynd en gerist um jólin og er bara þrusugóð mynd sem eldist vel og er gaman að horfa á hana rétt fyrir jól eins og t.d. í kvöld 5. desember.
5. Scrooged; Bill Murray í essinu sínu í nútímaútgáfu klassísku skáldsögunnar Christmas Carol eftir Dickens. Skemmtileg mynd sem mér fannst frábær þegar ég var 11 ára.
4. It's a Wonderful Life; verð að setja hana til þess að vera dáldið kvikmyndanörd.
3. Miracle on 34th Street; ekta jólamynd. Fyrri útgáfan betri en endurgerðin er samt fín.
2. Nightmere Before Christmas; Frábær jólamynd sem eldist einstaklega vel.
1. National Lampoon's Christmas Vacation; Kom einhver önnur mynd til greina.
Þetta er það sem mér datt í hug á 10 mínútum. Það getur vel verið að ég sé að gleyma einhverri klassík. Þið skrifið það þá bara í álitunum.